Sérverkefni – Viðskiptaþróun – Markaðsmál – Sala

Dæmigert veitir E4 fyrirtækjum ráðgjöf á sviði markaðsmála þar sem markmiðið er að færa þau nær nútímanum, sérstaklega með tilliti til aukinnar áherslu á stafræn samskipti og miðlun upplýsinga. Oftast snýst það um að grípa ný tækifæri til þess að auka sölu og sýnileika en ekki síður að hjálpa starfsfólki að skilja ný hlutverk og venjast breytingum.

Önnur verkefni sem fyrirtækið hefur sinnt í gegnum tíðina er gerð viðskiptaáætlana, styrkumsókna, fjárhags- og fjárflæðiáætlana, netmarkaðsherferða, og markaðsáætlana.  

E4 getur tekið þátt í verkefnum af hvaða stærð sem er en fyrir utan ráðgjöf er félagið með ýmis eigin verkefni á prjónunum.